Kynna stefnumál sín á opnum fundi fyrir innflytjendur

Akureyrarbær stendur fyrir opnum fundi með fulltrúum þeirra framboðslista sem taka þátt í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Fundurinn fer fram í Nausti í Menningarhúsinu Hofi fimmtudaginn 16. apríl klukkan 17 og verður haldinn á ensku. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Á fundinum kynna fulltrúar listanna helstu stefnumál sín, að því loknu verður opnað fyrir spurningar úr sal. Fundurinn er sérstaklega ætlaður innflytjendum með lögheimili á Akureyri en opinn öllum. Skráning er óþörf. Öll velkomin.

Á dögunum fór fram vinnustofa á vegum verkefnisins Mitt atkvæði – mín rödd, þar sem fjallað var um kosningarétt íbúa með erlent ríkisfang og stjórnmálakerfið með sérstakri áherslu á sveitarstjórnarstigið. Að vinnustofunni stóðu Akureyrarbær í samstarfi við nágrannasveitarfélögin Eyjarfjarðarsveit, Grenivík, Hörgársveit og Svalbarðseyri.

ENGLISH

A workshop was recently held as part of the project My Vote – My Voice, focusing on the voting rights of residents with foreign citizenship and the structure of the political system, with particular emphasis on the municipal level. The workshop was organized by the Municipality of Akureyri in cooperation with the neighboring municipalities of Eyjafjarðarsveit, Grenivík, Hörgársveit, and Svalbarðseyri.

Following the workshop, the Municipality of Akureyri will host an open meeting with representatives of the candidate lists running in the municipal elections in May. The meeting will take place at Naustið in the Hof Cultural and Conference Centre on Thursday, April 16 at 5:00 PM and will be conducted in English.

At the meeting, representatives from the candidate lists will present their main policy priorities, followed by a Q&A session with the audience. The meeting is particularly intended for immigrants registered as residents in Akureyri, but it is open to everyone. No registration is required. All are welcome.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!