Krambúðinni á Húsavík lokað um áramótin
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Vísir greindi frá því að Krambúðinni á Húsavík verði lokað um áramótin vegna erfiðs rekstrar. Leigusamningur hússins er að renna út og þykir ekki svara kostnaði að endurnýja hann, sérstaklega þar sem Samkaup rekur einnig Nettó á Húsavík . Fyrirtækið mun í stað leggja áherslu á rekstur Nettó. Um tíu starfsmönnum Krambúðarinnar verður sagt upp en til skoðunar er að lengja opnunartíma Nettó á móti og hugsanlega bjóða einhverjum starfsmönnum störf þar.
Tengdar greinar
Uppfært: 27. september 2026





