Karlakór Eyjafjarðar fagnar stórafmæli í Hofi
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Karlakór Eyjafjarðar fagnar 30 ára afmæli sínu með stórtónleikunum í Hofi á Akureyri 24. október næstkomandi. Á efnisskránni verða lög sem fólk þekkir í flutningi ýmissa vinsælla hljómsveita eins og t.d. Gautar, Ingimar Eydal, Skriðjöklarnir, Greifarnir, Baraflokkurinn, Póló og Bjarki og Magnús Eiríksson.
Einnig verða flutt lög eftir Óðinn Valdimarsson, Bjarna Hafþór og Eirík Bóasson. Þá verða einnig flutt sígild kórlög eins og t.d. úr Vesalingunum.
Guðlaugur Viktorsson stjórnar kórnum, Daníel Þorsteinsson verður hljómsveitarstjóri stórhljómsveitar. Snorri Snorrason og fleiri munu syngja einsöng í völdum lögum.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. september 2026





