Hryllilega skemmtileg helgi framundan

Það verður nóg um að vera hjá Menningarfélagi Akureyrar um helgina. Sýningar á Fasteignamartröðinni halda áfram, tónleikar með Nýdönsk og þá verða 90 ára afmælistónleikar til heiðurs Ingimari Eydal.
Fasteignamartröðin
Sýningar um helgina: 30 og 31. október II Kl. 20:00
Aðeins örfáar sýningar eru eftir af þessi einstöku sýningu sem hefur hlotið frábæra dóma gagnrýnenda. Nú er um að gera að skella sér í leikhús og sjá þessa einstöku sýningu áður en það verður um seinan!
Nýdönsk
Laugardaginn 31. október II Kl. 21 II Aðeins örfá sæti laus
Eins og fullkomið farartæki brunar sveitin áfram á vegum tónlistarinnar og sér ekki fyrir endann á ævintýrinu endalausa. Á síðasta ári sendi hljómsveitin frá sér hljómplötuna Í raunheimum sem innihélt meðal annars lag ársins.
Ingimar Eydal
Sunnudaginn 1. nóvember II Kl. 16 & 20 II Aðeins örfá sæti laus
Söngvararnir Sigríður Beinteinsdóttir, Stefán Hilmarsson, Matthías Matthíasson og Bjarni Arason flytja þekktustu lögin úr lagasafni Ingimars Eydal og félaga. Með þeim leikur frábær hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar ásamt sérstökum gestum.
Miðasala á viðburði fer fram á vef Menningarfélags Akureyrar.
Tengdar greinar
Uppfært: 30. október 2026










