Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fólk

JóiPé semur tónlistina fyrir Fasteignamartröðina

Eftir Ingólfur Stefánsson·
828629075_1724849599650694_7035006591599260938_n
kaffid.is

Jóhannes Damian R. Patreksson, betur þekktur sem JóiPé, semur tónlistina fyrir Fasteignamartröðina. Fasteignamartröðin er grátbroslegur samtímaskáldskapur um kómískan frumskóg húsnæðismarkaðarins. Sýningin verður frumsýnd í Samkomuhúsinu í október.

JóiPé hefur komið víða við í tónlistarheiminum og slegið í gegn sem tónskáld og rappari í tónlistarsenunni á Íslandi. Undanfarin misseri hefur hann beint sjónum sínum að gerð leikhús- og sjónvarpstónlistar. Þetta er í annað sinn sem Leikfélag Akureyrar fær að njóta góðs af vinnu Jóa en hann er einnig einn tónlistarhöfunda Jóla-Lólu sem sló í gegn hjá Leikfélaginu og hefur fengið gríðarlega mikla spilun á Spotify. Hann er einnig tónlistarstjóri og einn meðhöfunda Ormstungu sem slegið hefur rækilega í gegn í Þjóðleikhúsinu.

„Við erum gríðarlega spennt fyrir að upplifa hljóðheim Jóa þegar sýningar hefjast á Fasteignamartöðinni í byrjun október,“ segir í tilkynningu Leikfélags Akureyrar.

Nældu þér í miða á menningarfelag.is

Tengdar greinar

Uppfært: 1. október 2026