Íslandsmót í Skautahöllinni
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Íslandsmót Skautasambands Íslands í listskautum og skautahlaupi fer fram í Skautahöllinni á Akureyri um helgina og hefst í kvöld kl. 21.30 með keppni í skautahlaupi. Keppt verður í nokkrum aldurs- og getuflokkum og ókeypis verður inn á mótið alla keppnisdagana. Þátttakendur eru 53 og þar keppa 45 í listskautum og átta í skautahlaupi.
Á laugardaginn hefst listskautakeppni klukkan 10.45 og stendur fram eftir degi. Síðar sama dag, klukkan 16.30, tekur skautahlaupið aftur við með keppni í lengri vegalengdum.
Á sunnudaginn hefst keppni klukkan 9.00 með frjálsum aðferðum í Advanced Novice og Junior Women. Að keppni lokinni fer fram verðlaunaafhending á ísnum.
Tengdar greinar
Uppfært: 27. nóvember 2026





