Sparisjóðirnir
MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Endurnýjaður samstarfssamningur milli Akureyrarbæjar og íþróttafélaga

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Jóna Jónsdóttir, formaður ÍBA, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, takast í hendur að undirritun lokinni.· Mynd: Akureyri.is

Síðastliðinn þriðjudag, 24. nóvember, var undirritaður endurnýjaður samstarfssamningur milli Akureyrarbæjar og Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) um rekstur og starfsemi ÍBA út árið 2029. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag:

Bandalagið vinnur með íþróttahreyfingunni innan Akureyrabæjar og bæjaryfirvöldum að eflingu og útbreiðslu íþróttamála. Hlutverk ÍBA er m.a. að helda utan um fjármuni sem bandalaginu eru veittir og úthluta þeim til aðildarfélaga, staðfesta og varðveita lög aðildarfélaga og skila árlegu yfirliti til ÍSÍ auk þess að fylgjast með því að aðildarfélög starfi samkvæmt eigin lögum og lögum íþróttahreyfingarinnar. Samninginn má sjá hér.

Við sama tækifæri var skrifað undir endurnýjaðan rekstrarsamning Akureyrarbæjar og Siglingaklúbbsins Nökkva sem byggir á þeim samningi sem aðilar gerðu með sér árið 2021 þegar nýtt aðstöðuhús á félagssvæði Nökkva var tekið í notkun. Samkvæmt samningnum, sem gildir út árið 2031, skal Siglingaklúbburinn Nökkvi sjá um rekstur og umsjón félagssvæðisins, þ.m.t. aðstöðumannvirki, ásamt íþróttatengdri starfsemi. Nýjan rekstrarsamning Akureyrarbæjar og Nökkva má nálgast hér.

Loks var undirritaður viðauki við rekstrarsamning Akureyrarbæjar og Skautafélags Akureyrar frá árinu 2024 um rekstur Skautahallarinnar. Viðaukinn er tilkominn vegna aukins umfangs og reksturs í Skautahöllinni í kjölfar breytinga á aðstöðu í Skautahöllinni árið 2024. Sjá viðaukann hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 26. nóvember 2026