Sparisjóðirnir
MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Hildur Anna undirritar nýjan samning við Þór/KA

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
ARM_2297
Ljósmynd: Ármann Hinrik· kaffid.is

Þór/KA tilkynnti fyrr í dag að Hildur Anna Birgisdóttir hefði skrifað undir nýjan samning við félagið og sé þar með samningsbundin félaginu út tímabilið 2028.

Hildur Anna er 19 ára og hefur verið í vaxandi hlutverki með liðinu það sem af er tímabili. Hún hefur komið við sögu í 11 af 13 leikjum liðsins í Bestu deildinni það sem af er tímabilsins, þar af fimm sinnum verið í byrjunarliðinu. Hún kom fyrst við sögu með meistaraflokki í Lengjubikarnum 2023 og fyrst í Bestu deildinni sumarið 2024. Hún spilaði 19 leiki í Bestu deildinni 2024 og skoraði tvö mörk, en í fyrrasumar var hún með Þór/KA fyrri hluta sumars og síðan með Völsungi, í 2. deildinni, seinni hlutann á lánssamningi frá Þór/KA.

Samanlagt á hún að baki 59 meistaraflokksleik í Íslandsmóti, bikarkeppni og deildabikarkeppni, þar af 51 fyrir Þór/KA. Af þessum 59 leikjum eru 36 leikir í Bestu deildinni þar sem hún hefur skorað þrjú mörk.

„Hildur Anna er miðjumaður með góðan leikskilning, mikið keppnisskap og baráttuvilja sem skila góðri frammistöðu inni á vellinum. Auk þess að hafa verið á mála hjá Þór/KA í meistaraflokki og gegnum yngri flokkana hefur Hildur Anna stundað þjálfun barna sem og verið iðin við dómgæslu,“ segir í tilkynningunni.

Hildur Anna samdi fyrst við Þór/KA í maí 2024 og framlengir nú út tímabilið 2028.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026