Guðmundur leiðir K-listann í Eyjafjarðarsveit

K-listinn hefur kynnt lista fyrir komandi sveitastjórnarkosningar í Eyjafjarðarsveit þann 16. maí næstkomandi. Í tilkynningu listans segir að K-listinn sé óháð framboð og að listanum standi öflugur hópur einstaklinga með fjölbreyttan bakgrunn sem hafi það að markmiði að tryggja áframhaldandi hagsæld íbúa í Eyjafjarðarsveit.

„K- listinn leggur ríka áherslu á ábyrga, lýðræðislega og heiðarlega vinnu á komandi kjörtímabili,“ segir í tilkynningunni. Guðmundur S. Óskarssón, vélfræðingur og bóndi er oddviti listans en hér að neðan má sjá listann í heild.

1. Guðmundur S. Óskarsson, Hríshóli

Vélfræðingur / bóndi

2. Linda Lárusdóttir, Bakkatröð 8

Þroskaþjálfi / sérkennslustjóri

3. Friðrik Karlsson, Kambi

Vélfræðingur / Sviðsstjóri

4. Sóley Kjerúlf Svansdóttir, Jódísartúni 3

Kennari / sérkennslustjóri

5. Ragnar Jónsson, Halldórsstöðum

Bifvélavirki / bóndi

6. Margrét Árnadóttir, Þórustöðum 6

Söngkennari

7. Hafþór Magni Sólmundsson, Árgerði

Sjókokkur / bóndi

8. Valgerður Guðrún Valdimarsdóttir, Herðubreið

Landbúnaðarstarfsmaður

9. Aðalsteinn Hallgrímsson, Garði

Bóndi

10. Sveinbjörg Helgadóttir, Meltröð 4

Eldri borgari / fyrrum bóndi

11. Garðar Hólm Stefánsson, Bakkatröð 12

Matreiðslumeistari

12. Sigríður Bjarnadóttir, Hólsgerði

Sérfræðingur / bóndi

13. Sigurður I. Friðleifsson, Hjallatröð 4

Sviðsstjóri hjá Orku- og umhverfisstofnun

14. Ásta Arnbjörg Pétursdóttir, Hranastöðum

Fjölskyldufræðingur / bóndi

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!