Gróska býður fram í Hörgársveit

Gróska býður fram lista í Hörgársveit sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Listann má sjá í heild hér að neðan. „Á listanum er fólk með ólíkan bakgrunn, reynslu og þekkingu sem sameinast í þeirri trú að Hörgársveit eigi bjarta framtíð ef unnið er af ábyrgð, framsýni og í nánu samstarfi við íbúa,“ segir í tilkynningu Grósku á Facebook sem má lesa hér:

Við í Grósku setjum fram skýr og metnaðarfull stefnumál sem snerta það sem skiptir sveitarfélagið mestu máli. Við bjóðum okkur fram til að vinna með íbúum að sterkri og farsælli framtíð fyrir Hörgársveit, þar sem sameiginlegt átak skilar auknum tækifærum, betri þjónustu og bættum lífsgæðum.

Við viljum standa vörð um öflugt og lifandi samfélag þar sem hagsmunir íbúa eru ávallt í forgrunni. Gróska leggur áherslu á ábyrga og gagnsæja stjórnsýslu, markvissa uppbyggingu sem tekur mið af þörfum samfélagsins og að Hörgársveit verði áfram eftirsóknarverður staður til að búa, starfa og ala upp fjölskyldu.

Við viljum bæta aðstöðu fyrir börn og fjölskyldur með því að endurhanna og færa leiksvæði Þelamerkurskóla þannig að það verði öruggt, aðgengilegt og í samræmi við nútímakröfur. Jafnframt ætlum við að ráðast í endurbætur á íþróttamiðstöðinni á Þelamörk til að styrkja íþrótta- og tómstundastarf í sveitarfélaginu.

Við viljum efla íbúalýðræði með því að halda regluleg íbúaþing þar sem nefndir kynna störf sín, fara yfir helstu mál og taka við hugmyndum og ábendingum frá íbúum.

-lista GRÓSKU skipa:

1. Sunna María Jónasdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi/Hönnuður Skógarhlíð 41

2. Róbert Fanndal Jósavinsson, Bóndi, Litli Dunhagi

3. Kolbrún Lind Malmquist, Verkefnastjóri, Hamar

4. Jóhanna María Oddsdóttir, Hjúkrunarfræðingur, Dagverðareyri

5. Agnar Þór Magnússon, Bóndi , Garðshorn á Þelamörk

6. Jónas Davíð Jónasson, Bóndi, Hlaðir 4

7. Eva Hilmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Skógarhlíð 35

8. Ásgeir Már Andrésson, vélstjóri, Sólgarði

9. Arnar Ingi Tryggvason, Bóndi, Þverá 2

10. María Albína Tryggvadóttir, hjúkrunarfræðingur, Skógarhlíð 33

Umboðsmenn GRÓSKU eru Jónas Sigurðsson og Halldór Lind Guðmundsson.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!