Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Friðrik Dór og SinfoniaNord komin á toppinn

Eftir Ingólfur Stefánsson·
8M1A3098-1600×1067.jpg
kaffid.is

Friðrik Dór og SinfoniaNord komu fram á tvennum tónleikum í Hamraborg í Hofi síðastliðinn laugardag og buðu gestum upp á þekktustu lög Friðriks í kraftmiklum sinfónískum búningi. Þegar ákveðið var að halda tónleikana kviknaði sú hugmynd að gera lag saman.

Afraksturinn varð „Hvað er það versta sem gæti gerst?“, sem hefur jafnt og þétt klifrað upp vinsældarlista útvarpsstöðvanna og er nú komið alla leið á toppinn á vinsældarlista Rásar 2.

Lagið var tekið upp í Reykjavík og í Hofi á Akureyri og sá Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson um strengjaútsetningar, lagið var upphafslag á báðum tónleikunum í Hofi um helgina.

Næsti viðkomustaður er Eldborg í Hörpu þann 31. október. Þar er þegar nánast uppselt og hver að verða síðastur að næla sér í miða á þetta blómstrandi samstarf.

Heimild: Menningarfélag Akureyrar

Tengdar greinar

Uppfært: 7. október 2026