Framboðsfrestur vegna sveitastjórnarkosninga 16. maí 2026 rennur út föstudaginn 10. apríl kl. 12:00 á hádegi. Yfirkjörstjórn Akureyrarbæjar tekur á móti framboðs- og meðmælendalistum föstudaginn 10. apríl nk. á milli kl 10:00 og 12:00. Móttaka framboðlista fer fram í Ráðhúsinu á Akureyri. Þeir sem vilja skila listunum fyrr skulu hafa samband við einhvern neðan greindan yfirkjörstjórnarmann. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Framboðslista skal einnig fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í Akureyrarbæ. Tilgreina skal nafn meðmælenda, kennitölu hans og lögheimili. Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista við hverjar kosningar, sbr. VII. Kafla kosningalaga nr. 112/2021. Fjöldi meðmælenda skal vera að lágmarki 80 en að hámarki 160. Frambjóðendur geta ekki mælt sjálfir með framboði.
Framboðslistum skal skila á rafrænu formi, þar sem fram kemur nafn lista og upplýsingar um röðun frambjóðenda á lista og nafn, kennitala, heimilisfang og starfsheiti frambjóðenda listans.
Framboðslistum skal einnig fylgja tilkynning frá framboði um það hverjir séu umboðsmenn framboðsins ásamt tengiliðaupplýsingum þeirra.
Þá er mælst til þess að meðmælendur séu skráðir rafrænt á þar til gert vefsvæði á island.is
Á kjördag verður aðsetur yfirkjörstjórnar í bókasafni Verkmenntaskólans á Akureyri.










