Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Formlegur opnunarviðburður nýrrar Óperu verður í Hofi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
1643205934_hofbleikt
kaffid.is

Nýstofnuð ópera mun hefja starfsemi utan höfuðborgarsvæðsins, nánar tiltekið í Hofi á Akureyri, þar sem boðið verður upp á veglegan opnunarviðburð í haust.

Opnunarviðburðurinn verður 18. október í Hofi í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Viðburðurinn verður einnig fluttur á Eskifirði, í Skálholti, í Reykjanesbæ og síðar í Þjóðleikhúsinu. Þetta er í takt við stefnu hinnar nýju Óperu en lagt er upp með að starfsemin verði um allt land.

Að sögn Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar tónlistarstjóra Menningarfélags Akureyrar, er það einstakt gleðiefni að þessi viðburður verði í Hofi á Akureyri og gefi skýrt til kynna að óperan ætli sér að standa undir nafni. Sýningin er framleidd í samstarfi við Menningarfélagið sem rekur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Leikfélag Akureyrar og Menningarhúsið Hof, en öll svið félagsins taka þátt í sköpun og framkvæmd þessarar opnunarsýningar Óperunnar á Íslandi.

Finnur Bjarnason, óperustjóri, segir verkefnið afar spennandi og leggur áherslu á að mikilvægt sé að landsmenn um allt land fái tækifæri til að bæði kynnast og taka þátt í starfsemi óperunnar frá upphafi. Hann segir viðburðinn eins konar ferðalag þar sem saga óperunnar og íslensk menning mætast og varpa ljósi á hvernig þessir menningarheimar hafa þróast samhliða og haft áhrif hvor á annan.

Undir sömu stjörnu

Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um „Ástarstjörnu yfir Hraundranga“ samdi Richard Wagner óperuaríu til “Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Var það mögulega sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja?

Í þessari aðgengilegu og upplyftandi söngdagskrá er saga Óperunnar rakin, frá endurreisn til okkar daga, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum.

Einvala lið listamanna fléttar saman fróðleik og skemmtun og flytur okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar.

Fram koma Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir, messó-sópran, Gunnar Björn Jónsson, tenór, Kristján Ingi Jóhannesson, barítón, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór Norðurlands, og stórleikararnir Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Handrit og leikstjórn er í höndum Ólafs Egils Egilssonar og tónlistarstjóri Óperunnar, Richard Schwennicke, stjórnar hljómsveit.

Tengdar greinar

Uppfært: 29. september 2026