MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Ekki Googla komið í sölu í Hrísey

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Screenshot
Screenshot· kaffid.is

Borðspilið Ekki Googla sem var hannað af nokkrum nemdunum í VMA verður til sölu á Hríseyjarhátíðinni í dag og er komið í almenna sölu í Gallerí Perlu í Hrísey. Viktoría Líf Hermannsdóttir og Heimir Sigurpáll Árnason verða í dag með bás í Hrísey milli klukkan 14-16 en þau voru helstu drifkraftarnir á bak við þróun spilsins og komu að hugmyndavinnu, hönnun, uppbyggingu og framkvæmd verkefnisins.

Victoría Líf Hermannsdóttir, 18 ára, er á viðskipta og hagfræði braut í VMA og stefnir á að fara í háskóla að læra lögfræði og verða lögfræðingur eða jafnvel lögmaður.

Heimir Sigurpáll Árnason, 19 ára, nemur húsasmíði við VMA. Hann stefnir á að taka við búrekstri föður síns í Sveinungsvík og reka þar áfram bú. Heimir ætlar einnig að halda áfram að einbeita sér að fjárfestingum. Hann er nú þegar kominn af stað með ýmis verkefni og mörg önnur eru í kortunum. Framtíðarmarkmið hans er að verða stjórnarformaður í sterku fjárfestingarfélagi og tryggja þar góðan starfsanda með arðsemi í samræmi við hann. Hann sér framtíðina skýrt fyrir sér í raforku, fasteignum og matvælainnviðum.

Viðtökurnar á spilinu segja þau hafa verið góðar en spurning er hvort að verkefnið haldi áfram.

„Við eigum enn slatta af spilum og er planið að reyna klára að selja þau áður en ákveðið verður hvort haldið verður áfram með þetta verkefni eða ekki,“ segir Viktoría.

„Við vildum búa til spil sem gæti sameinað fólk og skapað skemmtilegar umræður. Hugmyndin var að prófa þekkingu á skemmtilegan hátt með fjölbreyttum spurningum og stigakerfi sem heldur leiknum spennandi frá upphafi til enda. Okkur fannst líka mikilvægt að búa til leik sem fær fólk til að leggja símana frá sér, eiga gæðastund saman og njóta samverunnar án þess að vera stöðugt að horfa á skjáinn.“

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026