Eiður ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Þórs

Eiður Benedikt Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Þórs. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þórs í dag.
Þar segir að um sé að ræða nýja stöðu hjá knattspyrnudeild og að Eiður muni hafa yfirumsjón með öllu starfi deildarinnar með sérstakri áherslu á meistaraflokksliðin og umgjörð þeirra.
Eiður var aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla á síðasta tímabili auk þess að vera yfirmaður leikmannaþróunar. Hann stígur nú frá því starfi og færir sig alfarið á skrifstofuna.
Eiður er 35 ára gamall og hefur mikla reynslu af þjálfun á efsta stigi á Íslandi. Hann er með UEFA Pro þjálfaragráðuna auk þess að hafa lokið Sports Management frá Johan Cruyff Institute í Barcelona.
„Umsvif knattspyrnudeildar hafa aukist töluvert á undanförnum árum og er ráðningin á Eiði liður í að mæta þeim áskorunum sem því fylgja. Að mati deildarinnar er um að ræða löngu tímabært skref og væntum við mikils af Eiði í starfinu,“ segir í tilkynningu Þórs.
Tengdar greinar
Uppfært: 27. nóvember 2026





