Kevin Vazquez áfram hjá Þór
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Knattspyrnumaðurinn Kevin Vazquez hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Þórs á Akureyri. Samningurinn gildir út árið 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu á samfélagsmiðlum Þórs í dag.
Kevin var í lykilhlutverki á síðasta tímabili þegar Þór hélt sæti sínu í Bestu deild karla í fótbolta. Liðið vann sex af þeim ellefu leikjum sem hann spilaði.
„Hann var okkur gríðarlega mikilvægur, bæði innan vallar sem utan. Það gleður okkur því mikið að á komandi tímabili fáum við að njóta krafta hans frá fyrsta leik. Knattspyrnudeild Þórs fagnar því að Kevin verði áfram í Þorpinu og hlakkar til komandi tímabils með honum,“ segir í tilkynningu Þórs.
Tengdar greinar
Uppfært: 27. nóvember 2026





