Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fólk

„Ég þarf ekki að skálda allt, sumt skrifar sig sjálft“

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Gabrielle3-1600×1525.jpg
kaffid.is

Raunveruleg íbúðaleit eftir skilnað varð kveikjan að Fasteignamartröðinni. Gabriele, höfundur verksins sem Leikfélag Akureyrar setur á svið í haust, segir húsnæðisvandann eiga sér kunnuglegar hliðstæður á Íslandi. Innan um útreikninga, lán og fasteignaviðskipti leynist þó stærri spurning: Hvað skiptir raunverulega máli í lífinu?

Gabrielė Labanauskaitė, er mætt til Akureyrar og áhorfendum gefst færi á að ræða við höfundinn um tilurð verksins á sérstakri sýningu á morgun, sunnudaginn 11. október.

„Ég myndi segja að helmingurinn sé sannur og helmingurinn skáldskapur. Sumt sem persónan gerir gerði ég ekki sjálf. Þið skiljið það þegar þið sjáið sýninguna“ segir Gabriele í samtali við heimasíðu Menningarfélags Akureyrar.

„Stundum hugsa ég: Ég þarf ekki að skálda allt saman. Það er nóg að skrifa niður það sem gerist í kringum mig.“

Sjáðu viðtal við Gabrielé:

Tengdar greinar

Uppfært: 10. október 2026