Akureyrarlistinn sem mun bjóða fram í komandi sveitarstjórnarkosningum á Akureyri kynnti í dag efstu 7 sæti á lista sínum. Í tilkynningu frá Akureyrarlistanum segir að listinn sé skipaður öflugum og framsæknum hópi fólks sem vill ná raunverulegum árangri fyrir bæjarbúa með skýrum áherslum og lausnum.
Helstu áherslumál Akureyrarlistans snúa að atvinnulífi, uppbyggingu, menntun, samgöngum, málefnum eldra fólks, menningu, íþróttum og mannlífi, lækkun skatta og auknu samtali við ríkið. Markmiðið er að efla Akureyri sem sterkt mótvægi við höfuðborgarsvæðið og tryggja áframhaldandi vöxt og lífsgæði í bænum.
Efst á lista Akureyrarlistans eru:
Þórhallur Jónsson – framkvæmdastjóri & varabæjarfulltrúi
Karen Sigurbjörnsdóttir – mannauðsfulltrúi & flíspeysumamma
Helgi Steinar Halldórsson – fasteignasali & ljósamaður
Kristrún María Björnsdóttir – doktorsnemi
Darri Rafn Hólmarsson – tölvunarfræðingur & plötusnúður
Dana Rán Jónsdóttir – sérfræðingur & líftæknifræðingur
Vilmundur Aðalsteinn Árnason – framkvæmdastjóri & fyrrverandi sjómaður
„Akureyrarlistinn leggur áherslu á að tala skýrt, vinna hratt og skila sýnilegum árangri, með metnað, festu og ekki síst gleði að leiðarljósi,“ segir í tilkynningu.










