Átta flokkar munu bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum á Akureyri þann 16. maí næstkomandi. Það er einum flokki færri en í kosningum árið 2022. Píratar, Kattaframboðið og Flokkur fólksins bjóða ekki fram í kosningunum í ár líkt og árið 2022 en Viðreisn og Akureyrarlistinn bjóða fram í fyrsta sinn.
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninganna rann út í dag, föstudaginn 10. apríl, klukkan 12 á hádegi. Yfirkjörstjórn Akureyrar sendi frá sér tilkynningu í dag með samþykktum framboðum sem eru átta talsins. Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026.
Framboðin átta sem bjóða fram í ár eru:
A- Akureyrarlistinn
B- Listi Framsóknarflokksins
C- Viðreisn
D- Listi Sjálfstæðisflokksins
L- L-listinn, bæjarlisti Akureyrar
M- Listi Miðflokksins
S- Listi Samfylkingarinnar
V- Listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs










