Aron Einar hættir með landsliðinu eftir Þjóðadeildina
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Knattspyrnumaðurinn Aron Einar Gunnarsson hefur greint frá því að Þjóðadeildin í ár verði hans síðasta þátttaka með íslenska landsliðinu í fótbolta. Aron Einar er næst leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins og var fyrirliði liðsins til fjölda ára, þar á meðal á EM 2016 og HM 2018.
„Ég hef gefið líf mitt og sál fyrir landið mitt í 18 ár og landið hefur gefið mér orku til baka, nú er kominn tími til að skilja við. Þjóðadeildin þetta haustið verður mitt síðasta mót í treyjunni bláu,“ skrifar Aron Einar í færslu á Instagram sem má sjá hér að neðan.
Aron sem er 37 ára gamall spilar í dag í Katar.
View this post on Instagram A post shared by Aron Gunnarsson (@arongunnarsson)
Tengdar greinar
Uppfært: 22. september 2026





