Arctic Sea Tours, Elín og Daniel fengu viðurkenningar

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin á Norðurhjarasvæðinu síðastliðinn þriðjudag. Venju samkvæmt voru veittar viðurkenningar í þremur flokkum: Fyrirtæki ársins, Hvatningarverðlaun og Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Arctic Sea Tours á Dalvík hlaut viðurkenninguna Fyrirtæki ársins 2026. Fyrirtækið hefur boðið upp á hvalaskoðun frá árinu 2009 og unnið að því að þróa þjónustu sína og auka fjölbreytni ferðanna, með öryggi og gæði í fyrirrúmi.
„Arctic Sea Tours hefur lagt áherslu á að bjóða upp á hvalaskoðun allt árið og þannig lagt sitt af mörkum til að efla vetrarferðaþjónustu á Norðurlandi. Framboð afþreyingar yfir fleiri mánuði ársins styrkir svæðið sem áfangastað og skapar tækifæri fyrir aðra þjónustu í nærumhverfinu. Þessi áhersla skiptir miklu máli í uppbyggingu ferðaþjónustu á Norðurlandi,“ segir á vef Markaðsstofu Norðurlands.

Elín S. Sigurðardóttir hlaut viðurkenningu fyrir Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi. Elí hefur veitt Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi forstöðu um árabil.
„Elín hefur verið formaður stjórnar og gegnt starfi forstöðumanns Heimilisiðnaðarsafnsins síðan 1993. Hún hefur unnið metnaðarfullt starf fyrir safnið og verið umhugað um að safnið starfi samkvæmt skilyrðum um viðurkennd söfn. Hún hefur jafnframt tekið virkan þátt í samstarfi safna og safnafólks, sem og í starfi Markaðsstofu Norðurlands. Elín á óumdeilanlega stærstan þátt í að tekist hefur að byggja upp þá menningarstofnun sem Heimilisiðnaðarsafnið er, sem einnig hefur fest sig í sessi sem afar áhugaverður viðkomustaður fyrir ferðamenn,“ segir á vef Markaðsstofu Norðurlands.

Hvatningarverðlaunin í ár hlýtur Daníel Hansen fyrir uppbyggingu og starf Fræðaseturs um forystufé á Svalbarði í Þistilfirði. Þar hefur hann staðið að áhugaverðri upplifun sem tengir saman íslenska búskaparhefð, fræðslu og menningu og gefur gestum innsýn í sérstæðan þátt í sögu og lífi þjóðarinnar.
„Með starfi sínu hefur Daníel sýnt hvernig þekking og sérstaða úr heimabyggð geta orðið að áhugaverðu aðdráttarafli fyrir ferðamenn. Fræðasetrið auðgar framboð menningartengdrar ferðaþjónustu á Norðurlandi og gefur gestum ástæðu til að staldra við í Þistilfirði og kynnast svæðinu betur. Með Hvatningarverðlaununum viljum við vekja athygli á þessu starfi og hvetja til áframhaldandi uppbyggingar,“ segir á vef Markaðsstofu Norðurlands.

Ítarlegri umfjöllun má finna á vef Markaðsstofu Norðurlands með því að smella hér.
Tengdar greinar
Uppfært: 16. október 2026





