Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Sunnan stormur í nótt - Appelsínugul viðvörun á Norðurlandi vestra

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
Veðurstofa Íslands

Veðurstofan varar við sunnan stormi á Norðurlandi í nótt og hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Norðurlandi vestra, sem og gula viðvörun á Norðurlandi eystra. Viðvaranir hefjast klukkan 21:00 í kvöld og standa til klukkan 03:00 í nótt.

Hvassast verður austarlega á norðurlandi vestra, þ.e.a.s. í Skagafirði og Tröllaskaga. Vindur 20-28m/s og vindhviður gætu sums staðar náð allt að 40m/s. Fólk er beðið að huga að lausamunum og líkur eru á foktjóni. Ekkert ferðaveður.

Á Norðurlandi eystra spáir öllu hægari vindi en samt er um varasamt ferðaveður áð ræða og fólk er beðið um að huga að lausamunum. Vindur 15-23m/s og vindhviður allt að 35m/s við Tröllaskaga.

Tengdar greinar

Uppfært: 28. nóvember 2026