Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Aravaka haldin í MA

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
l_1412332721_ma_gamli
Menntaskólinn á Akureyri· kaffid.is

Minningarmálþing í tilefni 100 ára fæðingarafmælis Ara Brynjólfssonar eðlisfræðings fer fram í Menntaskólanum á Akureyri sunnudaginn 27. september kl. 13.30 til 16.00. Málþingið ber heitið Aravaka og fer fram á ensku.

Ari var Akureyringur sem starfaði við alþjóðlegar vísindarannsóknir á sviði kjarnorku- og geislunarfræða. Hann bjó erlendis stærstan hluta ævi sinnar en hélt sterkum tengslum við heimahagana við Eyjafjörð. Hann var meðal fyrstu fræðimanna af svæðinu sem náðu alþjóðlegum frama á þessu fræðasviði. Nánar má fræðast um Ara á vef Akureyrarbæjar.

Á málþinginu fer dr. Sigurður Emil Pálsson eðlisfræðingur yfir mikilvægi vísindastarfa Ara Brynjólfssonar og dr. Ragnheiður Guðmundsdóttir eðlisfræðingur talar um hann sem faglegan áhrifavald. Þá verða flutt ávörp og kveðjur af menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðherra, bæjarstjóra Akureyrar og fulltrúum Menntaskólans á Akureyri og Háskólans á Akureyri. Einnig munu synir Ara, John og Alan, minnast föður síns og þriðji sonurinn, Erik Brynjólfsson, prófessor við Stanford háskóla, segir frá rannsóknum sínum. Erik er heimsþekktur fyrir frumkvöðlarannsóknir á áhrifum gervigreindar og upplýsingatækni á framleiðni, viðskipti og efnahagsþróun.

Dagskrá Aravöku – Minningarmálþings um Ara Brynjólfsson

Sunnudaginn 27. september 2026, Menntaskólanum á Akureyri

13.30 Fundarstjóri: Berglind Ásgeirsdóttir, fyrrverandi sendiherra, býður gesti velkomna.

Setningarávarp: Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

13.40 Ávarp: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar.

13.45 Tónlist: „Lysting er sæt að söng“ eftir Snorra Sigfús Birgisson. Flytjendur eru Mahaut Ingiríður Matharel, sópran, og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló.

13.50 Dr. Sigurður Emil Pálsson, eðlisfræðingur og sérfræðingur í geislavörnum og umhverfisvernd: „Vísindastörf Ara Brynjólfssonar – gildi þeirra fyrr og nú.“

14.10 Ávarp: Valdís Björk Þorsteinsdóttir brautarstjóri, Menntaskólanum á Akureyri.

14.15 Tónlist: „MIAMOR“ eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur. Flytjandi: Eydís Úlfarsdóttir, víóla.

14.20 Ávarp: Dr. Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri.

14.25 Hlé

14.50 Prófessor Erik Brynjolfsson: „Frá Akureyri til Apollo og gervigreindar – öld framfara.“

15.20 Tónlist: „Ástin heldur að ég sofi“, eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur og „Amour pense que je dorme“ eftir Pierre Sandrin. Flytjendur: Eydís Úlfarsdóttir, víóla, og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló.

15.30 John Brynjolfsson: “Don’t Stop… Thinking About Tomorrow.”

15.40 Alan Brynjolfsson: „Bandaríski víkingurinn.“

15.50 Dr. Ragnheiður Guðmundsdóttir, fyrrverandi eðlisfræði- og stærðfræðikennari: „Fyrirmynd sem vísaði veginn – áhrifavaldurinn Ari Brynjólfsson.“

16.00 Lokaorð: Dr. Þórhallur Eyþórsson, prófessor við Háskóla Íslands.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. september 2026