Sparisjóðirnir
MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Akureyrarbær styður Vísindaskólann áfram

Eftir Ingólfur Stefánsson·
visindaskoli
Mynd: Akureyri.is· kaffid.is

Síðastliðinn föstudag var undirritað samkomulag um að Akureyrarbær veiti Vísindaskóla unga fólksins styrk að fjárhæð 1 milljón króna fyrir árið 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, og Arnar Þór Jóhannesson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri undirrituðu samkomulagið en RHA annast rekstur Vísindaskóla unga fólksins. Kom fram að í framhaldinu væri fræðslu- og lýðheilsuráði falið að gera samkomulag um stuðning við vísindaskólann til lengri tíma.

Vísindaskóli unga fólksins er sumarstarf á vegum Háskólans á Akureyri sem ætlað er börnum á aldrinum 11–13 ára. Skólinn tók fyrst á móti nemendum sumarið 2015 og hefur síðan fest sig í sessi sem mikilvægur þáttur í samfélagsstarfi háskólans.

Markmið skólans er að vekja áhuga barna á vísindum, rannsóknum og námi með því að gefa þeim tækifæri til að kynnast fjölbreyttum fræðigreinum og starfsemi háskólans á lifandi og skemmtilegan hátt.

Heimasíða Vísindaskóla unga fólksins.

Tengdar greinar

Uppfært: 2. nóvember 2026