Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Áhrifadagar ungmenna í Hofi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
ungmenni
kaffid.is

Dagana 28. til 29. október næstkomandi verða Áhrifadagar ungmenna haldnir í Hofi á Akureyri. Ráðstefnan er haldin í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög sem UNICEF á Íslandi hefur unnið að í samstarfi við íslensk sveitarfélög til að styðja innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag.

Á ráðstefnunni koma saman fulltrúar ungmennaráða, starfsfólk sveitarfélaga og sérfræðingar til að vinna að lausnum í málefnum sem börn og ungmenni hafa lagt áherslu á. Meðal viðfangsefna eru hvernig styrkja megi samstarf ungmennaráða og sveitarstjórna, auka aðgengi barna að fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi og tryggja jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á vegum sveitarfélaga.

Dagskráin spannar tvo daga og byggir meðal annars á hópavinnu, kynningum og pallborðsumræðum þar sem þátttakendur vinna saman að því að þróa hugmyndir og lausnir sem geta nýst sveitarfélögunum.

„Akureyrarbær var fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að hljóta viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag árið 2020. Viðurkenningin var endurnýjuð árið 2024 og nú er stefnt að því að fá hana endurnýjaða á ný árið 2027,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Tengdar greinar

Uppfært: 15. október 2026