Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fólk

Yngsti nýsveinn í rafvirkjun á Íslandi

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
825329291_1110801078119784_7292232480314362775_n
Ljósmynd af vef VMA· kaffid.is

Nítján rafvirkjar og fjórir rafeindavirkjar fengu afhent sveinsbréf sín við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gær. Það sem var sérstaklega athyglisvert var að í hópi nýsveina í rafvirkjun var Ómar Magni Halldórsson sem mun vera yngsti rafvirki í sögu Íslands sem fær afhent sveinsbréf í faginu, fæddur 14. nóvember 2008 og því aðeins sautján ára gamall. Frá þessu er greint frá á vef VMA, þar segir einnig:

Ómar Magni hóf nám í rafvirkjun í VMA haustið 2023, þá tæplega fimmtán ára gamall. Hann brautskráðist sem rafvirki sl. vor frá VMA og í júní, nokkrum dögum eftir brautskráninguna, þreytti hann sveinspróf í rafvirkjun. Sveinsbréfið var síðan afhent í gær. Ómar Magni vann í faginu á meðan hann var í VMA og safnaði því markvisst því sem til þarf í ferilbók. Ómar býr á Svalbarðseyri en starfar á Rafeyri á Akureyri.

Tengdar greinar

Uppfært: 26. september 2026