Framsókn

Ýmir Már í Þór

Ýmir Már í Þór

Knattspyrnumaðurinn Ýmir Már Geirsson er genginn til liðs við Þór og hefur gert tveggja ára samning við knattspyrnudeild félagsins. Þetta kemur fram á vef Þórs í dag.

Ýmir kemur til Þórs frá KA, þar sem hann er uppalinn. Hann hefur leikið 78 meistaraflokksleiki fyrir KA, Magna og Dalvík/Reyni og skorað í þeim átta mörk. Þar af eru 26 leikir í efstu deild.

Ýmir er 26 ára gamall og hefur undanfarin ár verið við nám í Bandaríkjunum þar sem hann hefur leikið í háskólaboltanum þar í landi.

„Hann er fjölhæfur leikmaður sem hefur leikið víða á vellinum á sínum ferli en hann er örvfættur. Ýmir mætti á sína fyrstu æfingu í Þorpinu í gær og verður klár í slaginn þegar Þór mætir Keflavík í Lengjubikarnum á sunnudag. Við bjóðum Ými velkominn í Þorpið,“ segir í tilkynningu Þórs.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó