Vorsýningar DSA í Hofi á laugardaginn
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Dansstúdíó Alice, DSA, heldur tvær sýningar í Hamraborg í Hofi laugardaginn 6. maí. Fyrri sýningin hefst klukkan 12 og sú síðari klukkan 13:30.
Sýningin heitir Afsakið hlé og Nemendur DSA munu leiða áhorfandann í gegnum hið fullkomna kvöld fyrir framan sjónvarpið. Nemendur 2 ára og eldri sýna allir á báðum sýningum nema leikskólabörn, sem skiptast á sýningar. Miðasala fer fram á mak.is
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










