Vormarkaður Skógarlundar verður haldinn á fimmtudaginn
Eftir María Hjelm·

Vormarkaður Skógarlundar verður haldinn fimmtudaginn 4. júní kl. 9.00-17.30.
Á markaðnum verða til sýnis og sölu fjölbreyttir listmunir úr leir, tré og öðrum efnivið sem þátttakendur í Skógarlundi hafa unnið að í vetur og vor, ásamt fleiri verkefnum frá síðasta ári.
Posi verður á staðnum og gestum verður boðið upp á kaffi og konfekt.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










