Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

VMA og Stilla tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2026

Eftir Ingólfur Stefánsson·
VMA-768×576-1
Í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð til að fást við margs konar verkefni sem því tengjast· kaffid.is

Viðurkenningarráð Íslensku menntaverðlaunanna hefur tilkynnt hver hljóta tilnefningu til verðlaunanna í ár. Þetta er í sjöunda skipti sem verðlaunin eru veitt eftir að þau voru endurreist 2020. Verkmenntaskólinn á Akureyri er tilnefnfur fyrir sjálfbæra kennslustofu og þá er Stilla – hæglátt leikskólastarf tilnefnt í flokki þróunarverkefna en leikskólinn Iðavellir á Akureyri tekur þátt í verkefninu.

Verkmenntaskólinn á Akureyri hlaut tilnefningu í flokki iðn- og verkmennta fyrir sjálfbæra kennslustofu, nýsköpunarverkefni sem sagt er til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt. Í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð til að fást við margs konar verkefni sem því tengjast.

Í umsögn sem fylgdi tillögu að tilnefningu sagði meðal annars:

VMA á skilið viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar vegna frumkvöðlastarfs síns á sviði sjálfbærni, nýsköpunar og hagnýtrar kennslu. Með þróun sjálfbærrar kennslustofu, þar sem sólarsellur og vindorka sjá nemendum fyrir rafmagni til daglegra nota, hefur skólinn skapað lifandi lærdómssamfélag þar sem nemendur fá tækifæri til að tengja nám sitt við raunveruleg verkefni og samfélagsáskoranir samtímans. Verkefnið sýnir skýra framtíðarsýn um hvernig iðn- og verkmenntun getur verið leiðandi afl í loftslags- og orkumálum. Nemendur taka virkan þátt í þróun, rekstri og skilningi á tækninni og öðlast þar með dýrmæta verklega reynslu, ábyrgðartilfinningu og hæfni sem nýtist þeim í framtíðarstörfum. Verkefnið stuðlar jafnframt að jákvæðum skólabrag, auknu samstarfi við atvinnulíf og sterkari tengingu milli menntunar og samfélags. Framlag VMA er bæði frumlegt og áhrifamikið og hefur skólinn með þessu sýnt hvernig skapandi hugsun, fagmennska og samstarf geta leitt til raunverulegra menntaumbóta og orðið öðrum skólum fyrirmynd.

Stilla – hæglátt leikskólastarf er samvinnuverkefni rannsakenda og starfsfólks í fjórum leikskólum, Aðalþingi í Kópavogi, Iðavöllum á Akureyri, Rauðhóli í Reykjavík og Uglukletti í Borgarnesi.

Markmið verkefnisins var að skapa rými fyrir hæglátt leikskólastarf, þar sem börn fá nægan tíma og svigrúm til að sökkva sér í leik, kanna hugmyndir sínar og ljúka þeim verkefnum sem skipta þau máli. Nafnið Stilla vísar bæði til kyrrðar og þess að finna sameiginlegan takt, líkt og þegar hljóðfæri eru stillt saman. Hæglætið felst ekki í því að allt gangi hægt fyrir sig, heldur að starfsfólk stilli sig inn á börnin, samstarfsfélaga, umhverfið og aðstæður hverju sinni. Í kjarna þess liggja nærvera, hlustun, samfella og næmni fyrir fjölbreyttum þörfum og takti hvers barns.

Allar tilnefningar má finna á vef Skólaþróunar með því að smella hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 5. október 2026