Lið Menntaskólans á Akureyri féll úr leik í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur í gærkvöldi. Liðið laut í lægra haldi fyrir Kvennaskólanum í Reykjavík. Lokatölur urðu 27-17 Kvennó í hag.
Á þriðjudag mættust Verkmenntaskólinn á Akureyri og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ. Þar vann FG með 22 stigum gegn 13.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Lið MA skipuðu þau Óðinn Andrason, Sunna Katrín Hreinsdóttir og Tryggvi Snær Hólmgrímsson. Þjálfari liðsins er Sóley Anna Jónsdóttir.
Lið VMA skipuðu Inga Sóley Viðarsdóttir, nemi í hársnyrtiiðn, Viktor Helgi Gunnarsson, náttúruvísindabraut, og Stefán Pétur Sigurðsson, húsasmíðanemi. Þjálfari liðsins er Anna Kristjana Helgadóttir.
Fyrstu umferð keppninnar lýkur í dag með fjórum viðureignum.










