VMA leigir húsnæði í Rósenborg
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Vegna húsnæðisskorts og fjölda nýnema í haust, um 270, hefur VMA gert leigusamning við Akureyrarbæ um afnot af jarðhæð Rósenborgar fram að áramótum. Rýmið er þegar komið í notkun og fer þar fram kennsla fyrir 2. til 4. árs nemendur á sérnámsbraut á föstudagsmorgnum.
Gert er ráð fyrir að rýmkast muni um í húsnæði VMA á vorönn að lokinni brautskráningu í desember.
Til stendur að reisa viðbyggingu við VMA og samningur var undirritaður fyrir rúmum tveimur árum þar sem sveitarfélögin í Eyjafirði munu greiða 40% byggingarkostnaðar á móti 60% framlagi ríkisins. Ekki liggur þó enn fyrir hvenær framkvæmdir hefjast.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










