Virkum smitum á Norðurlandi eystra fjölgar um sex frá tölum gærdagsins. Það hefur því fjölgað um níu smit á síðustu tveimur dögum og virk smit á Norðurlandi eystra eru nú orðin 51.
Það fjölgar einnig töluvert í sóttkví en 135 manns eru nú í sóttkví á Norðurlandi eystra. Í gær voru 70 í sóttkví.
Alls greindust 86 smit innanlands í gær. Af þeim voru 72 prósent í sóttkví en 24 einstaklingar voru utan sóttkvíar eða 27 prósent.