MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

virgin orchestra gefur út BDSM

Eftir María Hjelm·
virgin-orchestra-1-2026-photo-credit-KAJA-SIGVALDA-1
Mynd: Kaja Sigvalda· kaffid.is

Hljómsveitin virgin orchestra gefur út BDSM, fyrstu smáskífuna af þriðju plötu sinni 7. júlí.

virgin orchestra sækir innblástur í post-pönk, raftónlist, draumapopp og noise-rokk og fléttar þessi áhrif saman í kraftmikinn hljóm.

Hljómsveitin, sem samanstendur af Rún, Starra og Stefaníu, hefur verið á mikilli uppsveiflu undanfarin ár, bæði á Íslandi og á erlendis, eftir útgáfu þeirra fragments árið 2023 og Let It Burn árið 2025.

virgin orchestra er í dag á tónleikaferðalagi í Bretlandi þar sem þau halda sex tónleika í eftirfarandi borgum; Glasgow (7.07), Manchester (9.07), Liverpool (10.07), Cardiff (11.07), London (16.07) og Brighton (17.07).

Síðustu helgina í júlí munu þau spila á Serravalle Rock á Ítalíu. Í september halda þau aftur til London til að spila á Iceland Airwaves Off-Venue tónleikum og í október opna þau fyrir Queens Of The Stone Age í Laugardagshöllinni.

Miðar fást hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026