Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Vinnustofur og menningarhús á Akureyri opna dyr sínar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
6abd809212dbb
kaffid.is

Hvað leynist á bak við dyr vinnustofa listamanna? Helgina 3. til 4. október gefst gestum tækifæri til að komast að því þegar Listarölt 2026 fer fram á Akureyri og í nágrenni. Opið verður frá kl. 13–17 báða dagana og aðgangur er ókeypis.

Listamenn bjóða gestum inn á vinnustofur sínar til að skoða verk, spjalla og kynnast sköpunarferlinu. Þar má fá innsýn í hvernig hugmynd verður að listaverki, heyra sögurnar á bak við verkin og skoða efniviðinn og áhöldin sem listamenn vinna með. Gestir geta einnig keypt verk beint af listamönnum og fundið eitthvað sem fær að fylgja þeim heim.

Úr bænum og út í fjörð

Listaröltið nær víða. Auk vinnustofa og sýningarrýma á Akureyri taka vinnustofur á Hjalteyri og inni í Eyjafirði á móti gestum. Hver og einn velur sína leið og sinn hraða. Það má rölta á milli staða í bænum, fara í bíltúr út fyrir bæjarmörkin eða skipta heimsóknunum á báða dagana.

Listaröltið er tilvalið tilefni til að taka með sér fjölskylduna eða góða félaga, heimsækja kunnuglega staði og uppgötva aðra sem maður hefur lengi ætlað að skoða.

Tónlist og leiðsögn á Listasafninu á Akureyri

Listasafnið á Akureyri tekur einnig þátt og býður gestum að njóta bæði myndlistar og tónlistar um helgina.

Laugardaginn 3. október syngja mæðgurnar Margrét Árnadóttir og Erla Mist Guðmundsdóttir saman í safninu í tengslum við tónleikaröðina Tólf tóna korter. Tónleikarnir hefjast kl. 15 og verða endurteknir kl. 16. Aðgangur er ókeypis, aðgengi er gott og öll eru hjartanlega velkomin.

Sunnudaginn 4. október kl. 13 verður Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri og sýningarstjóri, með leiðsögn um sýninguna Í skugga átaka.

Þannig má tengja safnheimsókn við viðkomu á vinnustofum og njóta fjölbreyttrar listar bæði í bænum og í fallegu umhverfi fjarðarins.

Safnaðu stimplum – og þú gætir eignast listaverk

Gestir geta fengið sér Listaröltsvegabréf og safnað stimplum á viðkomustöðunum. Þeir eru hvattir til að safna sem flestum stimplum og skila afrifunni úr vegabréfinu sunnudaginn 4. október til að taka þátt í happdrætti.

Dregið verður úr innsendum miðum og í vinning verða listaverk eftir þátttakendur Listarölts 2026. Því fleiri stimplum sem gestir safna, þeim mun meiri verða vinningslíkurnar. Vegabréfið gefur því góða ástæðu til að heimsækja fleiri staði og kynnast listamönnum sem maður hefur kannski ekki hitt áður.

Á hverri vinnustofu verður einnig boðið upp á „10.000 króna verkið“ – sérstakt verk á því verði. Þar gefst gestum tækifæri til að eignast list og styðja um leið við sköpun á svæðinu. Fyrstur kemur, fyrstur fær!

Hvort sem þú hefur áhuga á list, ert í leit að verki fyrir heimilið eða ert einfaldlega forvitin um hvað fer fram á vinnustofunum, þá ertu velkomin á Listarölt. Dyrnar verða opnar og listamennirnir tilbúnir að taka á móti þér.

Listarölt 2026
Laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. október · kl. 13–17
Akureyri, Hjalteyri og Eyjafjörður · Ókeypis aðgangur

Tengdar greinar

Uppfært: 1. október 2026