Framkvæmdir við nýjan gervigrasvöll á Þórssvæðinu á Akureyri halda áfram með fullum krafti og nú í morgun hófst vinna við að leggja sjálft grasið á völlinn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þórs í dag.
Um er að ræða knattspyrnuvöll í fullri stærð (105 x 68 m) ásamt 35 x 80 metra æfingasvæði, sem bæði verða með upphitun og flóðlýsingu.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Áhorfendastúka fyrir um 500 manns verður reist austan megin við völlinn þegar jarðvinnu og graslagningu lýkur.
Stúkan er þegar komin til landsins og verður sett upp á skömmum tíma. Framkvæmdirnar eru því á lokametrunum og stefnt er að því að völlurinn verði tilbúinn til notkunar á næstu vikum.










