Stjórn Akureyrarstofu hefur lýst yfir áhuga á að varðveita verk eftir listamanninn Margeir Dire sem staðsett er í Listagilinu á Akureyri. Þetta kemur fram á vef RÚV í dag.
Sjá einnig: Varðveita listaverk Margeirs Dire
Þar segir að safnstjóri Listasafnsins á Akureyri muni nú ræða við aðstandendur og vini Margeirs auk KEA sem er eigandi húsveggjarins um hugsanlegt samstarf. Margeir, sem ólst upp á Akureyri, lést fyrir tveimur árum, aðeins 34 ára.
Í bókun stjórnar Akureyrarstofu sem fundaði um málið þann 25. mars segir: „Stjórn Akureyrarstofu lýsir yfir áhuga á þátttöku í að varðveita verkið og felur safnstjóra að ræða við aðstandendur og vini Margeirs og KEA sem er eigandi húsveggjarins um hugsanlegt samstarf.“