Eins og Kaffið greindi frá á dögunum styttist óðfluga í opnun nýja Listasafnsins en formleg opnunarhátíð verður þann 25. ágúst á Akureyrarvöku. Mikið hefur verið í umræðunni hvernig umferð í Listagilinu verði háttað í framhaldinu en í gilinu er mjög mikil umferð daglega. Í Listasafninu verður einnig kaffihús með útisvæði þar sem hægt verður að sitja úti á sólríkum dögum. Bent hefur verið á að það fari ekki vel saman með þeirri umferð sem er í gilinu í dag og því hefur verið stungið upp á því að breyta gilinu í einstefnu niður.
Opinn fundur um framtíð Listagilsins
Mánudaginn 2. júlí n.k. verður haldinn opinn fundur um framtíð Listagilsins í Deiglunni kl. 17 og þar verða umferðarmálin m.a. rædd. Í viðburðslýsingu segir: ,,Við stöndum á tímamótum, ný uppgert Listasafn opnar í lok ágúst, með nýju kaffihúsi og glæsilegum sýningarsölum. Hvernig sjáum við fyrir okkur að fá notið þessa sem best?“
Fundurinn er opinn öllum, hægt er að nálgast viðburðinn hér.
UMMÆLI