MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Vilja að Heilsuvernd fái lóð á Akureyri án auglýsingar

Eftir María Hjelm·
moahverfi
default· kaffid.is

Bæjarráð Akureyrar ræddi erindi Heilsuverndar dagsett 22. apríl og 4. maí 2026 á bæjarráðsfundi í gær fimmtudaginn 4. júní, um áform um úthlutun lóðar til uppbyggingar heilbrigðisþjónustu og þjónustuíbúða fyrir aldraða. Heilbrigðisþjónustan myndi meðal annars fela í sér tímabundnar dvalir, endurhæfingu og leiguíbúðir.

Meirihluti skipulagsráðs hefur lýst stuðningi við áformin og leggur til að Heilsuvernd fái vilyrði fyrir lóð við Borgarmóa í Móahverfi án auglýsingar og vísa í undanþáguheimild í reglum bæjarins (grein 2.3 í reglum um úthlutun lóða). 

Í bókun bæjarráðs kemur fram að málið hafi verið gagnrýnt, meðal annars vegna þess að hluti verkefnisins snýr að rekstri leiguíbúða á hagnaðargrundvelli. Fulltrúar úr minnihlutanum telja það ekki eðlilega stjórnsýslu að slík lóðaúthlutun fari fram án frekari umræðu.

„Ég tek undir bókun Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur frá fundi skipulagsráðs 13. maí síðastliðinn. Ég tel óeðlilegt að úthluta lóð til reksturs leiguíbúða á hagnaðargrundvelli án auglýsingar án þess að meiri umræða um það fari fram. Þó er ég sátt við að Heilsuvernd fái vilyrði fyrir lóð undir heilbrigðisþjónustu við eldri borgara, þar á meðal tímabundnar dvalir og endurhæfingu fyrst ríkið hefur í langan tíma dregið lappirnar í byggingu hjúkrunarrýma og ekkert gert í endurbótum á Kristnesspítala. Ég myndi telja farsælast að byggja undir endurhæfingu og tímabundnar dvalir við Hlíð á lóð Akureyrarbæjar þar sem nú standa raðhús sem Akureyrarbær á,“  sagði meðal annars Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir í V-listanum. 

Bókunina má sjá í heild sinni hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026