Gæludýr.is

Vilja að hámarkshraði verði lækkaður við Þelamerkurskóla

Vilja að hámarkshraði verði lækkaður við Þelamerkurskóla

Foreldrafélag Þelamerkurskóla hefur sent inn erinti til Hörgársveitar þar sem lýst er yfir áhyggjum af miklum umferðarhraða í nágrenni skólans.

Hámarkshraði við Þelamerkurskóla er 90 km/klst. Skólalóðin liggur að þjóðvegi 1 og eru þar börn að leik allan ársins hring.

Samkvæmt mælingum sem gerðar voru í maí er meðalhraði á ákveðnum tímum yfir 90 km/klst. Hæsti mældi hraði var 167 km/klst. Sveitarstjórn Hörgársveitar hefur ítrekað það við Vegagerðina að umferðarhraði við Þelamerkurskóla verði lækkaður hið fyrsta og gerðar verði ráðstafanir við veginn til að auka öryggi barna við skólann.

VG

UMMÆLI