Kjöri á íþróttamanni Akureyrar 2018 var lýst í Hofi í kvöld en þetta var í 40. skipti sem íþróttamaður Akureyrar er heiðraður.
Þetta var í 40. skipti sem íþróttamaður Akureyrar er heiðraður. Alls hlutu 13 íþróttakonur og 15 íþróttakarlar úr röðum aðildarfélaga Íþróttabandalags Akureyrar, ÍBA, atkvæði til kjörsins. Á athöfninni veitti frístundaráð viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla og sérstakar heiðursviðurkenningar auk þess sem Afrekssjóður Akureyrarbæjar veitti afreksstyrki og aðildarfélögum styrki fyrir landsliðsmenn.
Íþróttakona Akureyrar 2018 er Hulda B. Waage úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar.
Í 2. sæti varð Silvía Rán Björgvinsdóttir hokkýkona úr Skautafélagi Akureyrar og í 3. Sæti Martha Hermannsdóttir handknattleikskona úr KA/Þór.
Íþróttakarl Akureyrar 2018 var kjörinn Viktor Samúelsson úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar.
Í 2. sæti varð Filip Szewczyk blakmaður úr KA og í 3. sæti varð Alexander Hinriksson júdómaður úr KA.
Þá voru veittar heiðursviðurkenningar Frístundaráðs en þær hlutu þau Árni Óðinsson fv. Formaður Þórs og Hrefna G. Torfadóttir fv. Formaður KA, bæði fyrir mikið og óeigingjarn starf í þágu íþrótta- og félagsmála á Akureyri.
Nánar á vef ÍBA hér.
UMMÆLI