Vikar Mar skapar innsetningar fyrir 100 ára afmæli 66°Norður

Í tilefni af 100 ára afmæli 66°Norður hefur myndlistarmaðurinn Vikar Mar verið fenginn til að skapa sérstakar innsetningar fyrir verslanir fyrirtækisins í Reykjavík, Kaupmannahöfn og London. Afmælisfögnuðurinn fer fram dagana 25. til 28. september.
Vikar Mar (f. 1999) er sjálflærður myndlistarmaður og sauðfjárbóndi sem býr og starfar á Hjalteyri. Hann hefur rekið þar vinnustofu frá árinu 2015 og vinnur markvisst að þróun eigin myndmáls, þar sem efniskennd, form og endurtekning eru í forgrunni. Hann sækir mikinn innblástur í hreyfingu, takt og síbreytileika vatnsins.
Innsetning hans fyrir 66°Norður ber titilinn „100 hreyfingar fyrir 100 ár“. Verkið nýtir endurtekningu sem þema til að vísa beint í sögu fyrirtækisins. Verkið vísar til þess hvernig margar af einkennandi flíkum 66°Norður hafa birst aftur og aftur, árstíð eftir árstíð, í gegnum sögu fyrirtækisins.
Sjá nánar á vef 66°Norður.
Tengdar greinar
Uppfært: 26. september 2026





