NTC

Viðurkenningar, styrkir og úthlutun úr Vísindasjóði á Vísindadeginum

Viðurkenningar, styrkir og úthlutun úr Vísindasjóði á Vísindadeginum

Undir liðnum Áfram við! voru á Vísindadeginum veittar viðurkenningar fyrir klíniska kennslu á SAk, úthlutun úr Vísindasjóði SAk var opinberuð og hvatningarstyrkur veittur til ungs vísindamanns á SAk. Vísindadagur Heilbrigðisvísindastofnunar Háskólans á Akureyri og Sjúkrahússins á Akureyri fór fram 19. september síðastliðinn.

​Tilnefningar til viðurkenninga fyrir klíniska kennslu komu frá nemendum. Læknanemar töldu lyflækningadeild standa best að klíniskri kennslu en hjúkrunarfræðinemar gáfu almennri göngudeild sitt atkvæði. Þá fengu nemar einnig tækifæri til að tilnefna framúrskarandi kennara Handhafar viðurkenninganna eru eftirtalin:

  • Oddur Ólafsson, sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum.
  • Lovísa Guðjónsdóttir, sjúkraliði á geðdeild.
  • Sólrún Drífa Steindórsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur.

Úthlutun styrkja úr Vísindasjóði SAk var einnig opinberuð og fengu eftirfarandi verkefni styrk:

  • Forsendur góðrar heilbrigðisþjónustu eru rannsóknir og þróunarvinna ásamt möguleikum til að nýta sér nýja þekkingu. Aðalumsækjandi: Björn Gunnarsson.
  • Prepregnancy BMI, optimal gestational weight gain and maternal/birth outcomes. Aðalumsækjandi: Laufey Hrólfsdóttir.
  • Prevalence of Obstructive Sleep Apnoea (OSA) among 4-9 Years old Children in the General Population. Aðalumsækjandi: Hannes Petersen.
  • Svefngæði og heilsa fólks með offitu. Afturskyggn sjúkraskrárrannsókn. Aðalumsækjandi: Ragnheiður Harpa Arnardóttir.

Sérstakan hvatningastyrk fyrir ungan vísindamann á SAk hlaut María Kristbjörg Árnadóttir, sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum, fyrir verkefnið sitt Gæði útkalla með læknismannaðri sjúkraflugvél frá Akureyri. Meðfram vinnu sinni á SAk hefur María stundað tveggja ára nám hjá Skandinavíska Svæfingalæknafélaginu (SSAI) í Critial Emergency Medicine. Hluti af því námi var að gera rannsóknarverkefni.

„Sjúkrahúsið á Akureyri óskar öllum handhöfum viðurkenninga og styrkja til hamingju með árangurinn,“ segir í tilkynningu Sjúkrahússins á Akureyri á Facebook.

VG

UMMÆLI