Gæludýr.is

Viðurkenningar fræðslu- og lýðheilsuráðs

Viðurkenningar fræðslu- og lýðheilsuráðs

Fræðslu- og lýðheilsuráð Akureyrarbæjar boðaði til samverustundar í Brekkuskóla í gær þar sem nemendum og starfsfólki leik-, grunn- og tónlistarskóla Akureyrarbæjar voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi skólastarf, skólaárið 2022-2023. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Þar segir að markmiðið með viðurkenningunum sé að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna. Viðurkenningin er einnig staðfesting á að viðkomandi nemandi, starfsmaður, skóli er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenningin nær til.

Óskað var eftir tilnefningum um nemendur, starfsfólk/kennara eða verkefni/skóli sem talin voru hafa skarað fram úr í starfi á síðasta skólaári. Heimtur voru með besta móti en um 74 tilnefningar bárust. Valnefnd, sem skipuð var fulltrúum frá fræðslu- og lýðheilsuráði, fræðslu- og lýðheilsusviði, Samtökum foreldra og Miðstöð skólaþróunar við HA fór yfir allar tilnefningar og úr varð að 28 viðurkenningar voru valdar.

Athöfnin hófst á tónlistaratriði en það var Valur Darri Ásgrímsson, nemandi í Brekkuskóla og Tónlistarskólanum á Akureyri sem flutti Distant Bells eftir Streabbog. Kristín Jóhannesdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs, afhenti síðan viðurkenningarnar til nemenda og starfsfólks.

Viðurkenningar hlutu:

  • Amelia Anna Söndrudóttir Dudziak, nemandi í Oddeyrarskóla, fyrir að vera jákvæð, metnaðarfull, sýnir seiglu og þrautseigju
  • Anna Kristín Þóroddsdóttir, nemandi í Brekkuskóla, fyrir vandaða framkomu, hjálpsemi og metnað í námi
  • Bergrós Níelsdóttir og Kolfinna Stefánsdóttir, nemendur í Giljaskóla, fyrir að sýna frumkvæði og leiðtogahæfileika í skólastarfi
  • Birkir Orri Jónsson, nemandi í Glerárskóla, fyrir framúrskarandi störf á sviði félagsmála
  • Elvar Máni Gottskálksson, nemandi í Giljaskóla, fyrir jákvætt viðmót
  • Eyþór Ingi Ólafsson, nemandi í Naustaskóla, fyrir að vera jákvæð fyrirmynd fyrir bekkjarsystkini sín
  • Helena Lind Logadóttir, nemandi í Síðuskóla, fyrir dugnað, þrautseigju, vinnusemi og hjálpsemi
  • Ingólfur Árni Benediktsson, nemandi í Naustaskóla, fyrir að vera frábær fyrirmynd sem fær hópinn með sér
  • Ísold Vera Viðarsdóttir, nemandi í Glerárskóla, fyrir samskipti og viðleitni gagnvart samnemendum sínum og starfsfólki
  • Kevin Prince Eshun, nemandi í Síðuskóla, fyrir framúrskarandi námsárangur í ÍSAT (Íslenska sem annað tungumál)
  • Vilté Petkuté, nemandi í Lundarskóla, fyrir dugnað og metnað í námi, jákvæðni og hlýju
  • Anna Lilja Hauksdóttir, Síðuskóla, fyrir fagmennsku í starfi sem þroskaþjálfi
  • Astrid Hafsteinsdóttir, Giljaskóla, fyrir kennslu í textílmennt
  • Bergmann Guðmundsson, Giljaskóla, fyrir jákvæðni, greiðvirkni og þjónustulund
  • Bryndís Björnsdóttir, Naustaskóla, fyrir framúrskarandi gott viðmót, þolinmæði og lausnaleit – foreldrasamstarf
  • Brynhildur Kristinsdóttir, Joris Rademaker og Rúnar Már Þráinsson, Brekkuskóla, fyrir fjölbreytta og skapandi starfshætti og umhyggju fyrir nemendum
  • Elfa Rán Rúnarsdóttir, Lundarskóla, fyrir vellíðan í námi, leik og starfi
  • Helga Halldórsdóttir, Glerárskóla, fyrir fagmennsku og stuðning við kennara
  • Kolbrún Sigurðardóttir, Naustaskóla, fyrir framúrskarandi starf sem stuðningsfulltrúi
  • Marzena Maria Kempisty, Naustatjörn, fyrir að vera framúrskarandi kennari/deildarstjóri
  • Ólafur Sveinsson, Hlíðarskóla, fyrir framúrskarandi starfshætti
  • Ragnheiður Ólafsdóttir, Brekkuskóla, fyrir framúrskarandi ævistarf
  • Salbjörg J. Thorarensen, Glerárskóla, fyrir helgun í starfi
  • Sveinbjörg Eyfjörð Torfadóttir, Tröllaborgum, fyrir áralangt yfirburðastarf sem kennari og deildarstjóri
  • Veronika Guseva, Síðuskóla, fyrir að vera framúrskarandi starfsmaður
  • Vordís Guðmundsdóttir, Lundarskóla, fyrir fagmennsku í starfi á unglingastigi og að vera einstakur kennari
  • Ágústa Kort Gísladóttir, Kjartan Valur Birgisson, Leó Már Pétursson og Ragnheiður Inga Matthíasdóttir, nemendur í Brekkuskóla, fyrir verkefnið Skólablaðið Skugginn: Frumkvæði, dugnað, sköpunarkraft og sjálfstæði
  • Kiðagil – Heimur og haf, fyrir frábært verkefni unnið í samvinnu við barnamenningu á Akureyri

Öllum verðlaunahöfum er óskað til hamingju með glæsilegan árangur og vel unnin störf við leik-, grunn- og tónlistarskóla Akureyrarbæjar.

VG

UMMÆLI

Sambíó