Bíladagar eru haldnir árlega í júní á Akureyri

Viðhorf bæjarbúa til Bíladaga misjafnt

Bæjarbúar Akureyrar hafa skiptar skoðanir á bæjarhátíðinni Bíladagar samkvæmt nýlegri netkönnun sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri framkvæmdi fyrir Akureyrarbæ. Fjallað er um niðurstöður könnunarinnar á vef Akureyrarbæjar.

Spurt var um viðhorf til Bíladaga, sem haldnir eru árlega í júní. Rúmlega 36% svarenda voru mjög jákvæðir eða frekar jákvæðir, rúmlega 27% voru hvorki jákvæðir né neikvæðir, en rúm 36% lýstu sig frekar eða mjög neikvæða.

„Athygli vekur að yngsti hópurinn, 35 ára og yngri, er neikvæðari gagnvart Bíladögum en eldri aldurshópar,“ segir á vef Akureyrar.

Hér má sjá niðurstöður rannsóknarinnar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!