Viðhaldslokun í Þelamerkurlaug
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Jónasarlaug, eða Þelamerkurlaug eins og hún er oftar kölluð, verður lokað vegna viðhalds frá mánudegi 19. maí til föstudags 23. maí. Lokað verður í bæði sundlaug og íþróttasal.
Laugin hefur löngum verið vinsæl meðal Norðlendinga, þá sérstaklega vegna þess að sundlaugin sjálf er alltaf 33-35 gráðu heit, sem er heitari en gengur og gerist.
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










