MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Viðburðir næsta sýningarárs Menningarfélagsins komnir í sölu

Eftir María Hjelm·
mak-samkomuhus2017
Mynd: MAK· kaffid.is

Viðburðir næsta sýningarárs Menningarfélagsins eru komnir í sölu. Þetta kemur fram á vef Menningarfélagsins. Hægt er að kynna sér úrval viðburða hér.

Á næsta ári verða 120 ár liðin frá því að fyrsta sýningin var haldin í Samkomuhúsinu á Akureyri og að því tilefni blæs Leikfélag Akureyrar til afmælissýningar sem heiðra mun minningar um marga af þeim menningaviðburðum sem fyllt hafa veggi Samkomuhússins í leik, tali og tónum síðustu tólf áratugi.

Sú sýning er aðeins brot af fjölbreyttu úrvali viðburða sem Menningarfélag Akureyrar ætlar að setja á svið frá og með næsta október.

Friðrik Dór og SinfoniaNord verða með tvenna tónleika, Óperan opnar í Hofi, nýtt og ferskt leikverk um frumskóg fasteignamarkaðarins og margt fleira spennandi mun gleðja og göfga huga og hjörtu áhorfenda á komandi vetri.

Einnig mun Skilaboðaskjóða heimamannsins Þorvaldar Þorsteins vera sett á fjalir Samkomuhússins, fjölskyldufólki til mikillar gleði.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026