Viðbragðsáætlun virkjuð

Viðbragðsáætlun virkjuð

Vegna aukinnar jarðskjálftavirkni í Bárðarbungu hefur Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra virkjað viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Bárðarbungu eða norðan Vatnajökuls í samráði við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Áætlunin er virkjuð á óvissustigi og hafa viðbragðsaðilar fengið boðun í gegnum neyðarlínuna í samræmi við viðbragðsáætlunina þar sem segir: Óvissustig – líkur á eldgosi undir Vatnajökli.

Virkjunin er fyrst og fremst gerð í þeim tilgangi að viðbragðsaðilar og þeir sem hafa hlutverkum að gegna samkvæmt áætluninni hafi tækifæri til að undirbúa sig og rifja upp áætlunina.

Viðbragðsáætlunina má finna á síðu almannavarna, sjá hér: Eldgosaáætlanir | Categories | Almannavarnir

Mynd af vef RÚV

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó