Sigtryggur Ellertsson skrifar
Miðbærinn er bæði andlit og hjarta Akureyrar og þar þarf að vera líf. Mannlíf. Við verðum að sjá til þess að hann sé gerður og hannaður fyrir fólk, fjölskyldur og fjölbreytt samfélag. Ekki aðeins bíla og bílastæði. Upplifunin þarf að vera sú að fólk hægi sjálfkrafa á sér, stoppi, spjalli og njóti þess að vera til. Miðbærinn á ekki að vera viðkomustaður á hlaupum, heldur staður sem fólk vill dvelja.
Með því að leyfa göngugötunni að standa undir nafni getum við tekið skref í þessa átt. Áhersla á umferð fólks umfram bíla skapar rými, rými fyrir börn (og fullorðna) að leika sér, fyrir fólk að setjast niður, fyrir atvinnulíf úr heimabyggð að dreifa úr sér og fyrir sterkari tengsl milli lista, menningar og hversdagslífs. Tónlistar- og listafólk og lifandi markaðsstemning ættu fyrir löngu að vera sjálfsagður hluti daglegs lífs í miðbænum. Slíkt umhverfi laðar að bæði íbúa og gesti og styrkir aðdráttarafl bæjarins.
Fyrir rekstraraðila skiptir þetta verulegu máli. Þegar fólk dvelur lengur í miðbænum eykst ekki bara umferð um göturnar, heldur líka líkurnar á að það nýti sér verslun, þjónustu, kaffihús, veitingastaði og menningarlíf. Fólk gefur sér tíma til að skoða, njóta og versla sem skapar dýrmæt tækifæri fyrir verslanir, kaffi- og veitingahús og þjónustu að vaxa, en einnig fyrir smærri aðila, frumkvöðla og listafólk sem annars eiga erfiðara með að hasla sér völl. Göngugata á lífi er í raun lífæð og innblástur fyrir öll sem starfa og lifa í miðbænum.
Við höfum mörg upplifað þetta erlendis: Að ganga um götur þar sem tónlist hljómar, listamenn skapa og fólk safnast saman án þess að þurfa sérstök tilefni. Þetta gerist hins vegar ekki af tilviljun heldur vegna þess að hönnun og skipulag setur fólk í forgrunn. Akureyri hefur öll skilyrði til að skapa slíkt umhverfi og verða fyrirmynd annarra samfélaga.
Það hefur svolítið verið tilfinningin að við setjum tímastimpil á miðbæinn. Hann er góður fram að hausti og svo tekur veðrið við. Þetta er ákvörðun og alls ekki sjálfgefin nálgun. Það er vel hægt að njóta þrátt fyrir að það sé ekki sól og blíða. Þetta er spurning um metnað í hönnun, lýsingu og skjólgóðum lausnum sem styðja við notalega og lifandi stemningu allt árið um kring.
Forsenda þessa alls er þó miðbær sem verður að vera fyrir öll. Aðgengi er ekki aukaatriði heldur grundvallaratriði. Þjónusta, menning og mannlíf er ekki einkaréttur þeirra sem geta komist leiðar sinnar hjálparlaust. Miðbær sem er okkar allra þarf að endurspegla það með sveigjanlegu skipulagi sem tryggir að engin séu skilin eftir. Slík framtíðarsýn fyrir miðbæinn er í samræmi við áherslur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um mannvænna, sjálfbærara og aðgengilegra samfélag fyrir okkur öll.
Ef við gerum þetta rétt fáum við ekki bara fallegri miðbæ, heldur sterkara atvinnulíf, fjölbreyttari menningu og samfélag þar sem fólki líður vel. Miðbær sem er opinn, lifandi og aðgengilegur öllum er miðbær sem dafnar.
Sigtryggur Ellertsson skipar 4. sæti lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs við bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri í maí.










