Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Verndun og virðing fyrir náttúrunni hefst með því að hlusta

Eftir Ingólfur Stefánsson·
IMG_5166-1
kaffid.is

Myndlistasýning Rakelar Hinriksdóttur, ‘Öðruvísi orð’ verður opnuð á bókasafni Háskólans á Akureyri á fimmtudaginn 1.október klukkan 16 til 18. Í hjarta sýningarinnar er frásögn af ferðalagi á norðurhálendi Íslands, þar sem manneskja á í samtali við ósnortna náttúru.

Myndverkin eru tilraun til þess að lýsa því á sjónrænan hátt, hvernig samtal án orða lítur út. Eins og í töluðum orðum, liggur meiningin í einhverju huglægu rými þar sem skilningur listamannsins og áhorfandans mætast.

„Við erum svo upptekin af okkar útgáfu af tilverunni,“ segir Rakel. „Okkar skilningi, forgangi og þörfum. Við horfum á náttúruna og veltum fyrir okkur hvernig við getum nýtt hana mannfólki til handa, í staðinn fyrir að hlusta og skilja. Víðerni Íslands eru ómetanleg dýrmæti sem við verðum að bera virðingu fyrir og standa vörð um. Sýningin er ein leið til þess að minna á, hversu einstakt það er að finna sig heima í náttúrunni.“

Rakel Hinriksdóttir er listakona, landvörður, fjölmiðlakona, grafískur hönnuður og formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi. Fjörtíu ára reynsla af því að eiga í samtali við tilveruna, áhugi og ást fyrir náttúrunni og einlægur vilji til þess að hlusta á hana, kristallast í sýningunni. „Verndun og virðing fyrir náttúrunni hefst með því að hlusta,“ segir Rakel.

Öll eru velkomin á sýningaropnunina, en léttar veitingar verða í boði. Sýningin er svo áfram opin á opnunartíma bókasafnsins út októbermánuð.

Verndun og virðing fyrir náttúrunni hefst með því að hlusta

Tengdar greinar

Uppfært: 30. september 2026